Sjálfvirk hleðsla (Autocharge)

Stöðin þekkir bílinn.
Þú stingur bara í samband.

Engin öpp, engin kort og engir lyklar. Hleðslan fer sjálfkrafa af stað og skráist á réttan bíl.

Svona virkar sjálfvirk hleðsla (Autocharge)

Sjálfvirk hleðsla (Autocharge) notar auðkenni sem bíllinn sendir sjálfur yfir hleðslukapalinn. Stöðin ber það saman við skrána ykkar og hleður, eða hafnar hleðslu sé bíllinn óþekktur. Týnd og stolin aðgangskort heyra sögunni til og misnotkun á kortum um leið.

1

Þú stingur í samband

Ekkert app, ekkert kort, enginn lykill. Bara kapallinn í bílinn.

2

Stöðin þekkir bílinn

Autocharge les auðkenni bílsins sjálfkrafa um leið og stungið er í samband og hleðslan fer af stað.

3

Rétt skráð á réttan aðila

Hver hleðsla bókast á bílinn sem hlóð og birtist strax í hleðslusögunni ykkar.

Bíll sem styður ekki Autocharge? Ekkert mál, við skráum hann á hefðbundið hleðslukort og hvort tveggja gengur hlið við hlið á sömu stöð.

Fyrir hverja?

Rafbíll í hleðslu í bílakjallara fjölbýlishúss, stöðin á veggnum við stæðið

Húsfélög

Sameiginlegar stöðvar þar sem hver íbúi greiðir fyrir sína notkun. Húsfélagið fær rafmagnið af sameiginlega mælinum endurgreitt mánaðarlega með kreditreikningi.

  • Réttlát skipting milli íbúa
  • Mánaðarlegt uppgjör til húsfélagsins
  • Íbúar sjá eigin notkun í vefgáttinni
Hleðslustöð við vinnustað, rafbíll í stæði við hliðina

Fyrirtæki og stofnanir

Bílaflotinn hleður sig sjálfur. Enginn kortalager og engin hætta á að kort gangi manna á milli; bíllinn sjálfur er auðkennið.

  • Sjálfvirk hleðsla (Autocharge) fyrir allan flotann
  • Notkun eftir bíl og tímabili
  • Skýrslur í CSV, Excel og PDF
Nánar fyrir fyrirtæki
Heimahleðslustöð á vegg í bílskúr með uppvafinn hleðslukapal

Heimili

Heimastöð sem bara virkar. Við sjáum um uppsetningu og rekstur, þú sérð notkunina þína hvenær sem er.

  • Uppsetning og umsjón
  • Hleðslusaga og kostnaður á einum stað
  • Engin mánaðaráskrift að appi

Stöðvarnar sem við setjum upp

Báðar eru AC-stöðvar með Type 2 tengli og báðar tala OCPP við kerfið okkar, svo hleðslusagan og uppgjörið líta eins út hvor sem verður fyrir valinu. Sjálfvirk hleðsla (Autocharge) er virk á CTEK-stöðvunum í dag; DEFA bætir henni við á þessu ári.

CTEK

Chargestorm Connected 3 og 3i

Sjálfvirk hleðsla (Autocharge) virk

Tvöföld stöð fyrir sameiginleg stæði. Einn eða tveir tenglar, allt að 22 kW á hvorn, og innbyggð álagsstýring skiptir aflinu milli þeirra, svo heimtaugin ræður alltaf við álagið.

Connected 3i er nýjasta útgáfan. Hún er með 7 tommu snertiskjá sem sýnir stöðu hleðslunnar og orkunotkun.

  • Einn eða tveir Type 2 tenglar
  • 32 A, einn eða þrír fasar
  • MID-vottaður orkumælir og RCD-tegund B
  • IP54 og IK10, þolir -30 til +50 °C
Tæknilýsing hjá CTEK
Tvöföld CTEK-stöð á ryðbrúnum stálvegg við bílastæði, önnur stöð fjær
DEFA-stöðvar á svörtum staurum við bílastæði fjölbýlishúss
DEFA

DEFA Power S

Sjálfvirk hleðsla (Autocharge) væntanleg á árinu

Nett stöð með áföstum sex metra kapli, hugsuð fyrir stakt stæði eða bílskúr. Skjárinn að framan sýnir stöðuna og stöðin kemst á netið um Wi-Fi, netsnúru eða 4G, hvar sem hún stendur.

  • Type 2 með áföstum 6 m kapli
  • Allt að 22 kW, 6 til 32 A
  • Wi-Fi, netsnúra og 4G
  • IP55 og IK10, MID-vottaður orkumælir
Tæknilýsing hjá DEFA
CTEK

Chargestorm Connected 3i með skjá

Merki og auglýsingar á skjánum

Sama tvöfalda stöð og Connected 3, með 7 tommu snertiskjá að framan. Þegar bíll er tengdur sýnir skjárinn stöðu hleðslunnar og orkunotkun.

Þegar stöðin er laus getur skjárinn sýnt merki eigandans og auglýsingar sem skiptast á, til dæmis tilboð, nýjar vörur eða skilaboð til starfsfólks og gesta.

  • 7 tommu snertiskjár
  • Merki og skjáhvílur sem skiptast á
  • Sjálfvirk hleðsla (Autocharge) og RFID-kort
  • Allt að 22 kW á hvorn tengil
Dæmi: tvöföld CTEK Connected 3i þar sem skjárinn flettir merkjum Hladdu, Bóka Sal, Fiskar.is, Verksýnar og Húsa- og lóðaverktaka.

Dæmi um skjáhvílur

Tengjum stöðvarnar sem þið eigið

Þið þurfið ekki endilega nýjar stöðvar. Við getum tengt CTEK- og DEFA-stöðvar beint við kerfið okkar og séð um skráningu og innheimtu frá fyrsta degi. Fjöldi stöðva er nú þegar tengdur kerfinu okkar. Ef þið eruð með aðra tegund, hafið samband og við skoðum málið.

Vantar þig hleðslustöð?

Samstarfsaðili okkar, Sér Tækni ehf., selur CTEK- og DEFA-stöðvar á ser.is. Við tengjum svo stöðina við kerfið okkar.

Hleðsla á almenningsstöðum, fyrir alla sem koma

Stöð á almenningsstað á að vera jafn einföld og stöðumælir. Gesturinn skannar QR-kóðann á skjánum, greiðir með korti í símanum og bíllinn byrjar að hlaða. Ekkert app að sækja, enginn aðgangur að stofna og ekkert kort í veskinu.

Þetta hentar við hótel og gistiheimili, verslanir, sundlaugar, félagsheimili og bílastæði sveitarfélaga. Íbúar og starfsfólk hlaða áfram sjálfvirkt með Autocharge eða korti, en gestir fá sína eigin leið að sömu stöð.

  • Skanna og hlaðaKóðinn leiðir beint á greiðslusíðu stöðvarinnar. Verðið stendur á skjánum, með virðisaukaskatti, áður en nokkuð er greitt.
  • Greitt fyrir fram, afgangurinn endurgreiddurGesturinn velur upphæð og hleður fyrir hana. Það sem ekki er notað fer aftur inn á kortið.
  • Staðurinn fær sittGesturinn fær kvittun og eigandi staðarins fær rafmagnið sem gestir nota greitt mánaðarlega, á því verði sem samið er um.
Setja upp stöð fyrir almenning
DEFA-hleðslustöð með kapli. Á skjánum er Hladdu-merkið, QR-kóði fyrir gesti, allt að 12 kW og gestaverð 39 kr. á kWst. með virðisaukaskatti
DEFA-stöð með Hladdu-skjá. QR-kóðinn hér er sýnishorn; á stöðinni sjálfri leiðir hann beint á greiðslusíðu hennar.

Ekkert yfirálag á heimtaugina

Þegar margir bílar hlaða í einu skiptist aflið á milli þeirra. Þannig fer notkunin aldrei yfir það sem heimtaugin þolir og öryggin slá ekki út. Allir bílar hlaða, bara hægar þegar margir eru tengdir.

CTEK-stöðvarnar stýra álaginu sín á milli á staðnum (NANOGRID), svo álagsstýringin virkar líka þótt netsamband rofni.

Tveir bílar í hleðsluhvor fær helming aflsins
Fjórir bílar í hleðsluhver fær fjórðung aflsins
Ramminn sýnir hámarksafl heimtaugarinnar. Bílarnir deila því á milli sín.

Eitt kerfi, þrjú sjónarhorn

Sama kerfið þjónar gestinum við stöðina, íbúanum heima og þeim sem rekur staðinn. Hver og einn sér það sem hann þarf og ekkert umfram það. Allt opnast í vafra, á síma eða tölvu.

Gesturinn

Skannar, greiðir og fylgist með

Síminn opnar síðu stöðvarinnar beint af QR-kóðanum. Gesturinn sér kílóvattstundirnar fyllast og kostnaðinn í krónum á meðan bíllinn hleður, og getur stöðvað hleðsluna sjálfur.

Íbúinn

Sér sína notkun, mánuð fyrir mánuð

Á Mínum hleðslum er hver hleðsla skráð með tíma, kílóvattstundum og verði. Mánuðirnir raðast upp í súlurit, svo það sést strax hvort veturinn kostar meira en sumarið.

Rekstraraðilinn

Heldur utan um allar stöðvarnar og uppgjörið

Í gáttinni sést hvaða stöðvar eru tengdar, hve mikið afl fer út yfir daginn og hvað mánuðurinn gerir upp: reikningar til notenda, kreditreikningur til húsfélagsins og greiðslur gesta.

Myndirnar sýna tilbúin dæmi. Nöfn og tölur eru ekki raunveruleg gögn.

Ekkert app, heldur vefsíða sem virkar á öllum tækjum

Í stað þess að neyða alla til að sækja enn eitt appið er allt á einni vefsíðu sem opnast í símanum, spjaldtölvunni og tölvunni: hleðslusagan, kostnaðurinn, stöðvarnar í rauntíma og skýrslur til niðurhals. Umsjónarmenn sjá stöðvar og notkun staðsetningar sinnar, og aðalumsjónarmenn sjá einnig alla hleðslusöguna: hvaða kort eða bíll hlóð, hvar og hvenær.

Opna Mínar hleðslur

Verð

Við bjóðum upp á AC-hleðslustöðvar fyrir venjulega rafbílahleðslu, allt að 22 kW. Það er tilvalið þar sem bílarnir standa yfir nóttina eða yfir daginn, hvort sem er heima, við vinnustaðinn eða í fjölbýli. Fyrir fyrirtæki og stærri notendur bjóðum við einnig DC-hraðhleðslustöðvar fyrir staði þar sem bílar þurfa að komast hratt af stað aftur.

Verð fer eftir uppsetningu og fyrirkomulagi. Hjá húsfélögum selur Hladdu notendum rafmagnið í eigin nafni og endurgreiðir húsfélaginu mánaðarlega, með kreditreikningi, það rafmagn sem hleðslan tók af sameiginlega mælinum.

Engin tvö verkefni eru eins. Fjöldi bílastæða, rafmagnsheimtaug, aðgengi að rafmagni og þörf fyrir álagsstýringu hafa öll áhrif á lausnina og kostnaðinn.

Sendu okkur línu og við gerum tilboð sem er sniðið að aðstæðum þínum, án skuldbindinga.

Fá tilboð

Svona greiða notendur

Mánaðarlegur reikningur

Eftir hver mánaðamót færðu rafrænan reikning fyrir hleðslu síðasta mánaðar og kröfu í heimabankann.

Greiðsla með korti

Einnig má greiða reikninginn með korti í gegnum hlekk á honum eða vista kort á Mínum hleðslum. Vistað kort er aðeins skuldfært fyrir útgefnum reikningum, aldrei sjálfkrafa eftir áætlun.

Gestir greiða á staðnum

Gestir skanna QR-kóða á stöðinni og greiða með korti. Hvorki þarf aðgang né app og það sem ekki er notað er endurgreitt.

Nánar í skilmálunum og á hjálparsíðunni.

Það sem við sjáum um

Húsfélagið þarf hvorki að halda utan um notkun né innheimta. Við sjáum um allt frá heimtaug að uppgjöri, og hjá fyrirtækjum eru bílar starfsfólks skráðir á fyrirtækið.

Heimtaugin og álagið

Við metum hvað heimtaugin þolir og stillum álagsstýringuna eftir því.

Uppsetning og tenging

Við setjum stöðvarnar upp og tengjum þær við kerfið okkar.

Bílar, kort og greiðendur

Við skráum bílana fyrir Autocharge og kortin á rétta greiðendur, og íbúar fá aðgang að Mínum hleðslum.

Innheimta og uppgjör

Við innheimtum hjá notendum og gerum húsfélaginu upp mánaðarlega með kreditreikningi. Stjórnin þarf ekki að sjá um neina innheimtu.

Vöktun og þjónusta

Við vöktum stöðvarnar, fáum tilkynningu ef stöð dettur út og svörum notendum í síma og tölvupósti.

Hafa samband

Segðu okkur frá áskorunum þínum: hvers konar húsnæði um er að ræða, hve mörg stæði eru og hvort rafmagnsinnviðir séu til staðar, og við komum með tillögu að réttu lausninni.

Ertu með spurningu um notkun? Skoðaðu hjálp og algengar spurningar.

Það sem við bjóðum

  • Ráðgjöf, uppsetning og tenging stöðva við kerfið okkar
  • AC-stöðvar allt að 22 kW, og DC-hraðhleðsla fyrir stærri notendur
  • Sjálfvirk hleðsla (Autocharge) eða hleðslukort, hvort sem hentar
  • Sjálfvirk innheimta á notendur og mánaðarlegt uppgjör við húsfélagið
  • Fyrirframgreidd hleðslukort fyrir gesti og leigjendur
  • QR-kóði á stöðinni fyrir gesti án Autocharge eða korts: skanna, greiða með greiðslukorti og hlaða
  • Álagsstýring, vöktun allan sólarhringinn og viðbragð ef stöð dettur út
  • Vefgátt fyrir íbúa og stjórn, og íslensk þjónusta í síma og tölvupósti